Fréttir / 22. desember 2021

Fjar-hlaupanámskeið á Facebook

SÍBS stendur nú aftur fyrir níu vikna “fjar”- hlaupanámskeiði í gegnum lokaðan hóp á Facebook. Námskeiðið er opið öllum, hvar á landi sem er og hefst 7. febrúar. Áherslur á námskeiðinu miðast við byrjendur eða þá sem eru að hefja hlaup eftir hlé. Hlaupaæfingar eru á ábyrgð þátttakenda sjálfra, þar sem hver og einn hleypur á sínum hraða en unnið er út frá einfaldri æfingaáætlun. Markmiðið er að þátttakendur byggi upp þol til að geta hlaupið í 30 mínútur án hvíldar. Skráning og nánari upplýsingar hér.

Námskeiðið hefur fengið frábærar umsagnir:

"Ég er gríðarlega þakklát fyrir að hafa fundið þetta námskeið, og bætingin á andlegri líðan minni er stærsti sigur minn á þessu námskeiði. Aukið þol er líka virkilega ánægjulegur plús."
"Það er gott að geta verið hvar sem er á landinu og hver á sínum hraða. Ég upplifði mikinn stuðning og aðhald og það var frábært að hafa svona hóp sem veitir aðhald og peppar mann áfram."

Þjálfarar á námskeiðinu eru þær Fríða Rún Þórðardóttir og Ingunn Guðbrandsdóttir sem báðar hafa mikla reynslu af þjálfun á ýmsum vettvangi.

Nýtt á vefnum