Ályktun SÍBS þingsins
Áskorun til stjórnvalda37. þing SÍBS, haldið á Reykjalundi 22.10.2010, fer þess eindregið á leit við ríkisstjórn Íslands að sparnaður á sviði heilbrigðismála undanfarin tvö ár verði tekinn til endurskoðunar. Sterkar vísbendingar eru um að nokkrar þessara sparnaðaraðgerða muni ekki skila tilætluðum árangri heldur aðeins rýra lífsgæði sjúklinga og öryrkja. Ríkur skilningur er á að nú um stund þurfi að gæta aðhalds í útgjöldum til heilbrigðismála. Krafa okkar er þó sú að samfélagslegur ávinningur sé meiri en kostnaður. Þingið leggur áherslu á að þessi endurskoðun hefjist eins fljótt og auðið er og að henni verði lokið eigi síðar en 3. janúar 2011. |















