Fræðslumynd um heilaskaða komin á vefinn

Heilaskaði vegna ofbeldis

Fræðslumynd SÍBS um afleiðingar heilaskaða vegna ofbeldis er komin á vefinn. Myndin greinir frá þeim hræðilegu og óafturkræfu afleiðingum sem ofbeldi getur haft, og er ætlað að hafa áhrif á hegðun ungs fólks. Kennurum er einnig heimilt að nota myndina í skólastarfinu.

Dregið í 5. flokki

Dregið var í 5. flokki Happdrættis SÍBS 11. apríl. Hæsti vinningur, kr. 5.000.000 kom á miða nr. 57841 og aukavinningar kr. 100.000 á miða nr. 57840 og 57842. 500.000 króna vinningar komu á eftirtalin númer: 10862, 32144, 34111, 36949, 51881, 58417, 60892, 61433, 65156, 70951. Vinningaskrána í heild má sjá hér.

Frumsýning fræðslumyndar

Frumsýnd er í dag í Bíó Paradís fræðslumynd um Heilaskaða vegna ofbeldis. Myndinni er ætlað að greina frá hörmulegum afleiðingum sem líkamlegt ofbeldi getur haft í för með sér, og hafa áhrif á hegðun fólks til hins betra.

Dregið í 4. flokki

Dregið var í 4. flokki Happdrættis SÍBS 11. apríl. Hæsti vinningur, kr. 5.000.000 kom á miða nr. 59925 og aukavinningar kr. 100.000 á miða nr. 59924 og 59926. 500.000 króna vinningar komu á eftirtalin númer: 6156, 16834, 17439, 24538, 29083, 39388, 39929, 40784, 43331, 66675. Vinningaskrána í heild má sjá hér.

Alþingi afgreiðir ætlað samþykki til velferðarnefndar

Alþingi hefur tekið þingsályktunartillögu um ætlað samþykki við líffæragjöf til umræðu og var málinu vísað til velferðarnefndar. Aðalflutningsmaður er Siv Friðleifsdóttir, en alls fluttu málið 18 þingmenn úr öllum flokkum.

Alþingi Þingsalur

SÍBS hefur ásamt samstarfsfélögum unnið að framgangi þessa máls síðan í október 2011, með þingmannafundum, fjölmiðlaumfjöllun og loks málþingi um líffæragjafir þann 6. mars sl., þar sem norskir fyrirlesarar kynntu þá leið sem þar er farin með ætluðu samþykki og opinni umræðu.

Hér má hlusta á ræður þingmanna um málið.

Skora á Alþingi að ræða ætlað samþykki

SÍBS hefur ásamt formönnum Hjartaheilla, Samtaka lungnasjúklinga, Félags nýrnasjúkra og Félags lifrarsjúkra sent Alþingi áskorun um að taka á dagskrá þingsályktunartillögu um ætlað samþykki við líffæragjafir og stefna að afgreiðslu tillögunnar á yfirstandandi þingi, en ár hvert deyr fólk á biðlistum eftir nýju líffæri.

  • Meirihluti Evrópuríkja hefur lögleitt ætlað samþykki og tíðni líffæragjafa er almennt hærri í þeim ríkjum en hinum, sem líkt og Ísland búa við upplýst samþykki / ætlaða neitun.
  • Tíðni líffæragjafa á Íslandi er aðeins tæpur helmingur af tíðni líffæragjafa í Noregi, þar sem ríkir ætlað samþykki.
  • Á Íslandi neita aðstandendur líffæragjöf í 40% tilfella, þótt bæði íslenskar og erlendar kannanir leiði í ljós að 80 – 90% fólks vilji gefa líffæri eftir sinn dag. 
  • Líffæraígræðsla er ódýrasta meðferðarúrræðið við mörgum sjúkdómum og jafnframt það sem gefur sjúklingum bestu lífsgæðin.

Fyrirlestur um endurhæfingu

Mánudaginn 26. mars kl 17:00 heldur Ásdís Kristjánsdóttir sviðsstjóri lungnasjúkraþjálfunar á Reykjalundi fyrirlestur um langtímaáhrif endurhæfingar á sjúklinga með langvinna lungnateppu eða langvinna hjartabilun.

Fyrirlesturinn verður haldinn í SÍBS-húsinu, Síðumúla 6, gengið inn bakdyramegin. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.

Líffæri fyrir lífið

Opin ráðstefna um líffæraígræðslur verður haldin á Grand Hotel Reykjavík, þriðjudaginn 6. mars kl. 15:00-17:00.


Dagskrá:

15:00 Fyrirlestrar um málefni líffæragjafa, regluverk og framkvæmd

— Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala

— Pål-Dag Line, yfirlæknir líffæraflutninga á Háskólasjúkrahúsinu í Osló

— Troels Normann Mathisen, starfsmaður samtaka líffæraþega í Noregi og hjarta-, lungna- og lifrarþegi

16:00 Umræður og fyrirspurnir

17:00 Móttaka


Allir velkomnir!

Fyrirlestur um berkla fyrr og nú

Mánudaginn 27. febrúar kl. 17:00 verður haldið fræðsluerindið "Berklar fyrr og nú" í SÍBS-húsinu, Síðumúla 6. Fyrirlesari er Þorsteinn Blöndal, sérfræðingur í lungnasjúkdómum. Gengið inn á bak við húsið. Allir velkomnir.

Dregið í 2. flokki

Dregið var í 2. flokki Happdrættis SÍBS 7. febrúar.

Hæsti vinningur, kr. 5.000.000 kom á miða nr. 48648 og aukavinningar kr. 100.000 á miða nr. 48647 og 48649.

500.000 króna vinningar komu á eftirtalin númer: 13348, 16649, 19298, 20023, 28768, 32655, 36671, 40170, 44397, 46877.

Vinningaskrána í heild má sjá hér.

Þingsályktunartillaga um líffæragjafir

Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga um að velferðarráðuneytinu verði falið að semja lagafrumvarp um ætlað samþykki til líffæragjafa. Slík lög fælu í sér að látnir einstaklingar yrðu sjálfkrafa líffæragjafar nema þeir eða aðstandendur þeirra lýstu vilja til hins gagnstæða.

Fram kemur í greinargerð með tillögunni að 80-90% manna séu samþykkir því að gefa líffæri að sér látnum, en í reynd veiti þó aðeins 40-50% aðstandenda heimlld til þess. Ætlað samþykki geti bæði létt aðstandendum þessa ákvarðantöku og stuðlað að auknu framboði af liffærum, sem aftur bjarga mannslífum.

Tugir Íslendinga eiga líf sitt að þakka ígræddum líffærum.

Fræðslufundur um gróðurofnæmi

Mánudaginn 30. janúar kl 17:00 mun Davíð Gíslason læknir flytja fræðsluerindi um gróðurofnæmi á Íslandi, orsakir, greiningu og meðferð.

Erindið er haldið SÍBS-húsinu, Síðumúla 6 (inngangur á bakhlið hússins).

Félagsráð SÍBS

Dregið í 1. flokki

Dregið var í 1. flokki Happdrættis SÍBS 13. janúar.

Hæsti vinningur, kr. 5.000.000 kom á miða nr. 39963 og aukavinningar kr. 100.000 á miða nr. 39962 og 39964.

500.000 króna vinningar komu á eftirtalin númer: 5648, 12786, 17616, 17671, 37733, 41169, 50096, 58634, 66232, 70545.

Vinningaskrána í heild má sjá hér.

Dregið föstudaginn 13. janúar

Nýtt happdrættisár 2012 hefst með útdrætti föstudaginn 13. janúar. Alls er dregið um yfir 1000 vinninga að verðmæti yfir 40 milljónir króna í hverjum mánuði – alls um hálfur milljarður á árinu!

Við erum heppin að lifa í samfélagi sem byggir á samkennd og eiga vini sem styðja og styrkja. SÍBS vinir eru bakhjarlar lífsnauðsynlegrar endurhæfingar að Reykjalundi sem byggir upp fólk eftir áföll.

Góður vinur leynist innra með okkur öllum – líka þér!

Dregið í 12. flokki

Dregið var í 12. flokki Happdrættis SÍBS 6. desember.

Hæsti vinningur, kr. 3.000.000 kom á miða nr. 23553 og aukavinningar kr. 100.000 á miða nr. 23552 og 23554.

500.000 króna vinningar komu á eftirtalin númer: 9170, 21544, 23415, 26533, 37069, 41913, 46448, 48667, 64464, 66111.

Vinningaskrána í heild má sjá hérna.

Póstlisti SÍBS-félaga

Fréttir um viðburði og hagsmunamál.

Hægt er að afskrá sig af póstlistanum hvenær sem er. Upplýsingar um afskráningu birtast í hverjum pósti.