|
19. júlí 2010 13:54 |
Félög og hlauparar skrái sig sem fyrst |
Áheitasöfnun í Reykjavíkurmaraþoni |
Félagsráð SÍBS vill vekja athygli aðildarfélaga SÍBS á mögulegri áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka árið 2010 sjá www.marathon.is
Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis.
|
meira... |
| |
6. júlí 2010 19:40 |
Happdrætti SÍBS |
Dregið í 7. flokki |
6. júlí var dregið í 7. flokki Happdrættis SÍBS. Hæsti vinningur, kr. 3.000.000, kom á nr. 4103 og aukavinningar kr. 100.000 á nr. 4102 og 4104.
Fimmhundruð þúsund króna vinningar komu á eftirtalin númer: 14028, 16848, 19405, 23993, 30418, 34457, 34508, 40025, 51618 og 69111.
Sjá má vinningaskrána í heild hérna. |
| |
1. júlí 2010 15:43 |
Heilsurækt í World Class |
Afsláttarkjör fyrir aðildarfélög SÍBS |
SÍBS hefur undirritað samning við World Class um kaup félagsmanna SÍBS á aðgangskortum hjá World Class.
Félagsmönnum SÍBS býðst að kaupa heilsuræktarkort í World Class gegn staðfestingu á félagsaðild. Verð árskorta og 3 mánaða korta er með 20% afslætti frá staðgreiðsluverði. Öryrkjar og ellilífeyrisþegar (67 ára og eldri) fá 30%. Samningur þessi gildir frá 24. júní 2010.
Félagsráð SÍBS |
| |
8. júní 2010 18:51 |
Dregið í 6. flokki Happdrættis SÍBS |
Dregið var í 6. flokki Happdrættis SÍBS þann 8. júní s.l.
Hæsti vinningur, kr. 3.000.000 kom á miða nr. 27675 og aukavinningar, kr. 100.000 á nr. 27674 og 27676.
Kr. 500.000 komu á nr. 4265, 9122, 29858, 37212, 37497, 37597, 40901, 60168, 66831 og 67171.
Vinningaskráin í heild er hérna
|
meira... |
| |
3. júní 2010 10:26 |
Opið hús 14. júní n.k. |
Geðrækt og geðorðin tíu |
Merkja við á dagatalinu |
Mánudaginn 14. júní n.k. verður að venju opið hús í SÍBS húsinu, Síðumúla 6. Þá mun Guðrún Guðmundsdóttir frá Lýðheilsustöð fjalla um: GEÐRÆKT OG GEÐORÐIN TÍU. Fyrirlestur hennar hefst kl. 16.10.
Þessi fyrirlestur var áður á dagskrá 10. maí, s.l. en var frestað vegna veikinda.
Kaffi á könnunni
Allir velkomnir.
Félagsráð SÍBS. |
| |
17. maí 2010 10:20 |
Fundarboð |
Aðalfundur Vífils þriðjudag 18. maí |
Aðalfundur Vífils, félags einstaklinga með kæfisvefn og aðrar svefnháðar öndunartruflanir, verður haldinn þriðjudaginn 18 maí, 2010 kl. 20:00 í SÍBS húsinu Síðumúla 6, gengið inn frá bílastæði bakdyramegin.
Aðalfundarstörf samkvæmt lögum Vífils.
Fræðsluerindi: Ólöf Ámundadóttir sjúkraþjálfi verður með erindi um hreyfingu.
Kaffiveitingar: verð kr. 500,- Kaffispjall að venju.
Stjórn Vífils.
|
| |
17. maí 2010 10:12 |
Vel heppnuð Heiðmerkurferð |
SÍBS lundurinn - skógarhögg |
Farin var fyrsta formlega ferð í landnemareit Berklavarnar í Heiðmörk á sunnudaginn. Vel var mætt, eða hátt á fjórða tug félagsmanna. Tekið var til hendinni og rudd slóð í gegn um greniskóginn auk þess sem tekið var lagið við harmonikuundirleik og notið veitinga, sem N1 bauð fram af þessu tilefni. Er það hér með þakkað, svo og því góða fólki sem mætti í Heiðmörkina. Sólskin var, en nokkur norðangola.
|
meira... |
| |
11. maí 2010 09:19 |
Ferð í SÍBS lundinn á sunnudag |
Lautartúr í Heiðmörk |
 |
|
Smellið fyrir stærri mynd.
Akið Heiðarveg og upp fyrir Borgarstjóraplan til hægri. | Farin verður ferð á vegum SÍBS í SÍBS lundinn í Heiðmörk sunnudaginn 16. maí n.k. Ráðgert er að hittast við SÍBS húsið, Síðumúla 6, kl. 12.50. Lagt verður af stað kl. 13.00 og farið í samfloti frá Síðumúla 6, áleiðis að SÍBS lundinum í Heiðmörk. Þeir sem þurfa far eru beðnir um að láta vita. Þeir sem vilja, geta farið beint í lundinn.
Vinsamlega tilkynnið um þátttöku í síma: 552-2150 eða á tölvupóstfang: helgi@sibs.is fyrir lok miðvikudags, 12. maí. |
meira... |
| |
10. maí 2010 10:52 |
Fyrirlestri frestað |
5. maí 2010 18:58 |
Dregið í 5. flokki Happdrættis SÍBS |
3. maí 2010 15:12 |
Geðrækt og geðorðin tíu |
12. apríl 2010 11:37 |
Starfsemi Múlalundar þegar hafin þar |
7. apríl 2010 20:02 |
Dregið í 4. flokki |
17. mars 2010 10:05 |
Múlalundur flyst brátt að Reykjalundi |
5. mars 2010 19:05 |
Dregið í 3. flokki Happdrættis SÍBS |
25. febrúar 2010 13:52 |
Opið hús mánudaginn 8. mars |
24. febrúar 2010 14:33 |
Fjölmenni á ráðstefnu SÍBS |
18. febrúar 2010 10:06 |
Heilbrigðiskerfi á krepputímum |
5. febrúar 2010 18:24 |
Dregið í 2. flokki Happdrættis SÍBS |
5. febrúar 2010 14:08 |
Þorraveisla í Múlalundi |
5. febrúar 2010 11:09 |
Sjúkratryggingar Íslands |
4. febrúar 2010 14:07 |
Landsbankinn leggur Reykjalundi til 5 milljónir króna |
29. janúar 2010 00:36 |
Kynning á mettunarmælum og súrefnissíum |
20. janúar 2010 15:21 |
Opið hús á mánudaginn |
eldri fréttir
|